UMSÓKNAR- OG KAUPFERLI BÚSETURÉTTAR Í NÝBYGGINGUM

Sala á 20 búseturéttum við Maríugötu 7 hefst 18. október 2022 kl. 10:00. Umsóknarfrestur rennur út kl. 12:00 fimmtudaginn 27. október. Úthlutun fer svo fram 31. október, kl. 12:00 með rafrænum hætti.

Til að geta sótt um íbúð verður þú að vera félagsmaður en hægt er að skrá sig í Búseta hér GERAST FÉLAGI

Íbúðir í nýbyggingum Búseta eru auglýstar á föstu verði og félagsnúmer ræður röð umsækjenda.

SKREF 1 - Innskráning á „Minn Búseti“:

  • Til að sækja um íbúð, eina eða fleiri, þarf að skrá sig inn á „Minn Búseti“ með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og lykilorði.
  • Umsækjandi þarf að vera skuldlaus félagsmaður til að geta sótt um búseturétt.
  • Mikilvægt er að gilt netfang sé skráð við félagsaðildina.
  • Ef umsækjandi er ekki félagsmaður getur hann skráð sig með því að smella á eftirfarandi tengil og gerast félagi. Skráning tekur stutta stund.

SKREF 2 – Umsókn fyllt út:

  • Þegar komið er inn á „Minn Búseti“ er hægt að sækja um þær íbúðir sem eru lausar. Hægt er að sækja um fleiri en eina íbúð.
  • Þær íbúðir sem umsækjandi velur safnast saman í „Mínar umsóknir“. Mikilvægt er að raða völdum íbúðum í forgangsröð. Við úrvinnslu umsókna er notast við þessa röðun og ef umsækjandi fær íbúð er eytt út úr umsóknarferlinu þeim íbúðum sem eru neðar í röðinni hjá viðkomandi.
  • ATH umsóknarfrestur rennur út kl. 12:00 fimmtudaginn 27. október 2022.

SKREF 3 – Úthlutun:

  • Úthlutunarlisti (listi yfir röð umsækjenda) verður birtur á www.buseti.is kl. 10:00 þriðjudaginn 18. október.
  • Tölvupóstur er sendur á efsta umsækjanda á listanum með tilkynningu um úthlutun. Sá umsækjandi verður að staðfesta úthlutunina fyrir kl. 14:00 á úthlutunardaginn með því að svara tölvupóstinum. Að þeim tíma loknum er haft samband við næsta umsækjanda á listanum.
  • Ef umsækjandi hyggst nýta sér lán sem kaupendum stendur til boða, þarf hann að tilkynna það til Búseta. Lánið er háð lánareglum Landsbankans og er veitt að undangengnu greiðslumati bankans. Í eftirfarandi tengli má lesa um lánakjör vegna kaupa á búseturétti

SKREF 4 – Bráðabirgðasamningur og greiðsla búseturéttar:

  • Ganga þarf frá bráðabirgðasamningi vegna kaupa á búseturétti innan 10 virkra daga frá úthlutun og greiða kr. 860.000 inn á búseturéttinn og kostnað vegna kaupanna kr. 140.000, samtals kr. 1.000.000.
  • Bóka þarf fundartíma í síma 556 1000 eða sendið tölvupóst á buseti@buseti.is til að ganga frá samningi. Gott er að hafa samband við sinn viðskiptabanka fyrir fundinn og láta vita af upphæð millifærslunnar.
  • Hægt er að sækja um lán hjá Landsbankanum, viðskiptabanka Búseta fyrir allt að 50% af virði búseturéttarins. Upplýsingar um hámarkslánsfjárhæð er í auglýsingu. Um lánamöguleika og -kjör má lesa hér
  • Þegar farið er á milli búsetaíbúða gengur eldri búseturéttur upp í þann nýja, að frádregnum kostnaði. Hér má nálgast verðskrá
  • Íbúi verður að vera í skilum með búsetugjöldin. Landsbankalán getur færst á milli íbúða. Hvert tilfelli er þó skoðað fyrir sig þegar að samningsgerð kemur. Að öðrum kosti er lán greitt upp.
  • Ef hjón eða sambúðarfólk ætlar að vera skráð saman á samninginn þurfa báðir aðilar að vera félagsmenn. Árgjald félagsaðildar er kr. 5.500,-

SKREF 5 – Afhending íbúðar:

  • Fulltrúi frá Búseta framkvæmir úttekt á íbúðinni, ásamt kaupanda og afhendir honum svo lykla.
  • Búsetugjaldið er greitt fyrirfram og þarf að vera greitt fimm dögum fyrir afhendingu lykla. Krafa verður send í heimabanka.
  • Athugið að réttur til vaxtabóta fylgir búsetaíbúðum með almennum lánum. Tekjur og eignir búseturéttarhafa hafa áhrif á upphæð bótanna, sem og vaxtagjöldin sem greidd eru inni í búsetugjaldinu. Ekki er hægt að fá húsaleigubætur vegna íbúða við Maríugötu. Hér má nálgast upplýsingar um vaxtabætur
  • Skrifstofan sér um að láta þinglýsa búsetusamningunum.
  • Athugið að búsetugjöldin taka mið af áætlun sem mun leiðréttast þegar raungjöld falla til, s.s. endanlegt fasteigna- og brunabótamat á eignirnar og hússjóður þegar húsfélag er stofanað.